Vopnfirðingar fengu nýtt björgunarskip

Fjöldi fólks tók á móti björgunarskipinu Sveinbirni Sveinssyni þegar það kom til heimahafnar á Vopnafirði í fyrsta skipti í gær. Sveinbjörn er sjöunda nýja björgunarskipið sem kemur til landsins á síðustu árum sem hluti af nýsmíðaverkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Áttunda skipið er væntanlegt í haust, það fær nafnið Unnur og heimahöfn á Patreksfirði. Önnur fimm skip eru væntanleg á næstu árum.Þau skip sem voru þegar komin eru Guðmundur í Tungu á Ísafirði, Ingibjörg á Höfn í Hornafirði, Björg á Rifi, Jóhannes Briem í Reykjavík, Sigurvin á Siglufirði og Þór í Vestmannaeyjum. Áhöfn skipsins lagði af stað frá Reykjavík síðdegis á föstudag, fékk leiðindaveður fyrir Látrabjarg, og hélt áfram norður fyrir land með stoppum á Patreksfirði, Ísafirði, Siglufirði og Þórshöfn. Nýjum björgunarsk
Vopnfirðingar fengu nýtt björgunarskip

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd