Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hefur tilkynnt að börnum yngri en 16 ára verði bannað að nota samfélagsmiðla en verði bannið samþykkt á þingi muni það taka gildi vorið 2027. Hann segir, í ræðu sinni í Downingstræti, að samfélagsmiðlar geri börn óhamingjusöm, auðveldi eineltisfólki að níðast á börnum og séu „hannaðir til að vera ávanabindandi“.