Fulltrúar Bandaríkjanna og Íran eru væntanlegir til Doha í vikunni vegna áframhaldandi viðræðna í tengslum við friðarsamkomulagið sem náðist í gær. Þetta gerist áður en samkomulagið verður undirritað á föstudag. AFP-fréttastofan hefur eftir embættismanni að undirbúningsviðræður verði haldnar í Doha. Undirritunin sjálf fer fram í Sviss. Í undirbúningsviðræðunum á að ræða tæknileg úrlausnaratriði. Heimildarmaðurinn sagði AFP-fréttastofunni að milligöngumenn frá Katar hefðu rætt við Írana í sautján klukkustundir og átt við þá ákafar viðræður áður en samkomulag náðist.Samkomulaginu hefur verið fagnað víða um heim. Í morgun lýstu til dæmis Sádí-Arabar, Kínverjar og Evrópusambandið yfir ánægju sinni með að binda ætti enda á stríðið við Persaflóa.Ekki voru þó allir ánægðir. Itamar Ben Gvir, varna