Úkraínski flugherinn segir að Rússar hafi skotið 70 eldflaugum og 611 drónum að Úkraínu í nótt, flestum þeirra að höfuðborginni Kyiv. Hellaklaustrið, Pechersk Lavra, stóð í ljósum logum eftir árásirnar.Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, hvatti leiðtoga G7-ríkjanna til að auka þrýsting sinn á Rússa. Þeir hittast á fundi í Frakklandi.Zelensky sagði mikilvægt að leiðtogarnir yrðu afdráttarlausir í viðbrögðum sínum og létu aðgerðir fylgja. Hann sagði að auk þrýstings á Rússa þyrftu Úkraínumenn aukinn stuðning við loftvarnir sínar, sérstaklega til að verjast eldflaugum Rússa.Avraamiy fylgist með klaustrinu brenna.AP / Evgeniy Maloletka