Fjármálaáætlun og orkunýting á dagskrá þingsins

Fjórtán mál eru á dagskrá þingfundar sem hefst á Alþingi klukkan 10:30. Fundurinn hefst á óundirbúnum fyrirspurnatíma. Því næst eru á dagskrá atkvæðagreiðslur um afdrif og framgang níu þingmála, þar á meðal þingsályktunartillögu um fjármálaáætlun næstu fimm ára.Því næst taka við umræður um atvinnuréttindi útlendinga, 1100 ára afmæli Alþingis og vernd- og orkunýtingu landsvæða.Stefnt er að því að ljúka þingstörfum í þessari viku.Alþingishúsið.RÚV / Ari Páll Karlsson
Fjármálaáætlun og orkunýting á dagskrá þingsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd