Fjöldi þeirra sem þiggja lífeyri frá Tryggingastofnun Ríkisins vegna langvinns covid hefur tvöfaldast á tveimur árum. Þetta kemur fram í svari Tryggingastofnunar við fyrirspurn Heimildarinnar. Langvinn veikindi eða ný einkenni eftir bráðafasa covid-19 sýkingar hafa verið kölluð long covid á ensku eða langvinnt covid á íslensku. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO skilgreinir langvinnt covid sem áframhald eða þróun nýrra einkenna þremur mánuðum eftir...