Hlýjast á Norðausturlandi í dag

Íbúar norðaustan- og austanlands mega eiga von á besta veðrinu í dag. Þar verður yfirleitt léttskýjað og á Norðausturlandi er útlit fyrir allt að 19 stiga hita. Annars staðar er útlit fyrir einhverja vætu og á það sérstaklega við norðvestan til.Veðurspáin er svohljóðandi:Austlæg eða breytileg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu í dag og líkur á vætu, einkum norðvestantil, en yfirleitt léttskýjað norðaustan- og austanlands. Hiti 6 til 19 stig, hlýjast á Norðausturlandi, en svalast austast. Vaxandi austan- og norðaustanátt á morgun, víða 8-15 seinnipartinn og hvassast syðst og norðvestantil. Skýjað en þurrt að kalla suðaustantil, annars víða bjart veður, en líkur á síðdegisskúrum suðvestanlands.Svipaður hiti en hlýnar heldur vestanlands.
Hlýjast á Norðausturlandi í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd