Friðarsamkomulag hefur náðst milli Bandaríkjanna og Írans.Donald Trump Bandaríkjaforseti, íranski herinn og Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, sem hefur leitt samningaviðræður, staðfesta þetta allir. Samkvæmt heimildum AFP-fréttaveitunnar verður samkomulagið undirritað í Genf í Sviss á föstudag.Í samkomulaginu felst að Íranir opna fyrir umferð um Hormússund, sem hefur að mestu verið lokað frá því í byrjun mars eftir að Bandaríkjamenn hófu loftárásir á Íran. Á móti afléttir Bandaríkjaher herkví sinni á sjó.„Skip heimsins, ræsið vélarnar. Látið olíuna flæða!“ skrifaði Donald Trump á samfélagsmiðilinn Truth Social.Forsætisráðherra Pakistans greinir frá því að í samkomulaginu felist einnig að bundinn sé tafarlaus og varanlegur endi á allar hernaðaraðgerðir, þar á meðal í Líbanon. Benj