Hellaklaustrið í Kænugarði í ljósum logum

Hellaklaustrið, Pechersk Lavra, í úkraínsku höfuðborginni Kænugarði stendur í ljósum logum eftir árásir Rússa í nótt.Klaustrið er það stærsta í landinu og hefur verið meðal helstu miðstöðva austurkristni frá stofnun þess árið 1051.„Þak einnar heilögustu byggingu kristindómsins brennur,“ skrifar Epifíanus, erkibiskup úkraínsku rétttrúnaðarkirkjunnar á samfélagsmiðilinn X.Borgarstjórinn í Kænugarði greinir frá því að tíu manns séu særðir eftir árásir næturinnar. Þar af hafi átta verið fluttir á sjúkrahús. Í landamæraborginni Kharkív fórust fimm í árásum í nótt og fimm særðust.
Hellaklaustrið í Kænugarði í ljósum logum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd