Tillögu um takmörkun íbúafjölda hafnað

Svisslendingar höfnuðu tillögu í þjóðaratkvæðagreiðslu í dag sem sneri að því að hámark íbúafjölda í landinu yrði 10 milljónir manna frá og með árinu 2050.Það hefur engin önnur þjóð reynt nokkuð þessu líkt áður.Svissneski þjóðarflokkurinn, sem er harðlínu hægri flokkur, knúði fram þessa atkvæðagreiðslu. Tillagan mætti mótstöðu frá ýmsum geirum atvinnulífsins og öðrum stjórnmálaflokkum.Íbúum hefur fjölgað ört frá 2002, þá voru Svisslendingar 7,3 milljónir en nú búa þar 9,1 milljón. Af þeim eru um 27 prósent af erlendum uppruna. Þjóðarflokkurinn kennir fjölgun innflytjenda um hin ýmsu vandræði í samfélaginu, þar á meðal húsnæðisskort, hækkun húsaleigu, troðningi í lestarvögnum og umferðarteppur.
Tillögu um takmörkun íbúafjölda hafnað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd