Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar var flutt í lögreglufylgd frá Strandgötu á Akureyri yfir í Jólagarðinn í Eyjafjarðarsveit í kvöld. Stöðva þurfti umferð á meðan flutningnum stóð vegna breiddar hússins.Leigubílastöðin var auglýst gefins gegn því að vera sótt, eftir að bærinn hafði betur í langdreginni deilu um lóðina við Hofsbót.Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar flutt í jólagarðinn.Rúv-Kristófer Óli BirkissonRúv-Kristófer Óli Birkisson