Klaustrið í Garðabæ í niðurníðslu og býður upp á slysahættu

Húsið hefur staðið autt um þónokkurt skeið og liggur undir skemmdum. Brotnar rúður, óhreinindi og glerbrot út um allt.Miðað við umganginn innanhúss er ljóst að einhverjir hafa notað húsnæðið. Íbúi í nágrenninu sem fréttastofa talaði við sagði alvanalegt að unglingar og ógæfufólk fari þangað inn, til dæmis til neyslu.Þá er algengt að krakkar í hverfinu leiki sér í og við húsið.Byrgt er fyrir allar dyr og glugga og hætta á stórslysi ef kviknaði þar í með fólk innan dyra. Enn er rafmagn á húsinu, þrátt fyrir að það hafi ekki verið í notkun lengi.Þá er brunnur við húsið opinn og óvarinn, með tilheyrandi slysahættu, enda margir metrar til botns. 2300 FERMETRA HÚS SEM MÁ MUNA SINN FÍFIL FEGRI Húsið var áður í eigu Sankti Jósefssystra og var byggt á áttunda áratug síðustu aldar. Í kaupsamningi
Klaustrið í Garðabæ í niðurníðslu og býður upp á slysahættu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd