Flugvél sem flutti fallhlífastökkvara hrapaði í dag í Missouri-ríki í Bandaríkjunum, með þeim afleiðingum að allir tólf farþegar vélarinnar létust. Þetta herma heimildir viðbragðsaðila í samtali við AFP-fréttastofuna.Flugslysið varð nálægt Butler Memorial-flugvellinum, um 95 kílómetra suður af Kansas City, að sögn Dennis Jacobs, yfirmanns almannavarna í Bates-sýslu.Einkaflugvélin, sem flutti ellefu fallhlífastökkvara og einn flugmann, sneri við af ókunnum ástæðum skömmu eftir flugtak um klukkan 11:30 á staðartíma og hrapaði nálægt þjóðvegi, sem varð til þess að yfirvöld lokuðu veginum, að því er fram kemur í fréttum héraðsmiðla.Þar sem Kansas City hýsir nokkra leiki á HM í fótbolta sagði lögreglustjóri að nafni Chad Anderson á blaðamannafundi að yfirvöld sæju engar vísbendingar um hryðjuve