Umdeildir bardagar í Hvíta húsinu í kvöld

Allt er til reiðu fyrir umdeilt UFC-bardagakvöld sem verður haldið við Hvíta húsið í Washington í kvöld. Viðburðurinn er liður í að fagna 250 ára afmæli Bandaríkjanna og áttræðisafmæli Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.Framkvæmdin hefur verið gagnrýnd víða fyrir að vera of dýr og ekki við hæfi þessa sögufræga staðar. Einnig eru uppi áhyggjur um að veður geti spillt fyrir. Það er heitt í Washington og um það leyti sem bardagarnir fara fram gæti rignt töluvert.Viðburðurinn hefst klukkan 23:45 í kvöld á íslenskum tíma.
Umdeildir bardagar í Hvíta húsinu í kvöld

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd