Svæðið „lifnar allt við“ í góða veðrinu

„Við finnum það að þá lifnar allt svæðið við, það eru ekki bara þessir hörðustu sem vilja fara í golf heldur allur almenningur og þeir sem hafa einhvern áhuga. Þá mæta þeir á svæðið.“Þetta segir Svavar Geir Svavarsson, skrifstofu- og markaðsstjóri Golfklúbbsins Odds í Garðabæ, um aðsókn í góðvirðinu í dag. Hann hefur fundið vel fyrir áhrifum veðurblíðu helgarinnar.Á sólardögum eins og voru um helgina telur Svavar að um 5-700 manns sæki klúbbinn heim og ekki takistað anna eftirspurn. Fólk streymdi að í dag og síðustu daga.„Það eru mjög margir sem myndu vilja koma hérna í viðbót, það er ekki spurning, þannig að við gætum örugglega verið með annan golfvöll við hliðina á okkur og hann væri fullur líka. Hér eru allir rástímar allavega fullir og mikið líf á svæðinu, það er virkilega gaman að sjá
Svæðið „lifnar allt við“ í góða veðrinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd