Sigurgeir Svanbergsson ætlar að synda niður Lagarfljót á morgun, fyrstur manna sem vitað er um. Sundið er 50 kílómetrar og Sigurgeir áætlar að það muni taka hann allt að sólarhring.„Ég spyr mig alltaf að því sama þegar ég byrja: af hverju í ósköpunum er ég að þessu?“ segir Sigurgeir.Þegar blaðamaður ræddi við hann var Sigurgeir á leiðinni austur en hann stefnir á að hefja sundið milli klukkan sex og átta annað kvöld. ALLTAF AÐ LEITA AÐ SKRÝTNUM VERKEFNUM Hann segir sundið fyrst og fremst vitundarvakningu og áheitasöfnun fyrir Píeta samtökin.„Hin ástæðan er sú að ég er bara þannig gerður að ég er alltaf að leita mér að einhverjum skrýtnum verkefnum. Þetta fannst mér einstaklega skrýtið og ég hafði áhuga á að athuga hvort þetta væri hægt.“Hann segir það að synda niður Lagarfljót vera eina