Íbúðafélagið Brák hefur byggt fjórar íbúðir í Langanesbyggð á síðustu árum. Þær fóru strax í leigu og að sögn oddvita sveitarstjórnar er þörf fyrir fleiri. Í nýlegu yfirliti HMS er staðan metin þannig að að byggt hafi verið umfram nýja íbúðaþörf á árunum 2023-2025.„Umsóknirnar voru fleiri heldur en íbúðirnar þannig að það er augljóst að okkur vantar enn íbúðir hérna, sérstaklega í þessum stærðarflokki. Og innan Þórshafnar, þar sem við erum að byggja þessar íbúðir, virðist vera íbúðaþörf en ekki jafn mikil á Bakkafirði eða í dreifbýlinu,“ segir Jóhann Hafberg Jónasson, oddviti sveitarstjórnar í Langanesbyggð.Auk leiguíbúðanna hafa verið byggð fleiri íbúðarhús í sveitarfélaginu en Jóhann segir að það vanti aðallega minni íbúðir, bæði fyrir ungt fólk og þá sem eldri eru og vilja minnka við si