Þrír hlutu minniháttar meiðsl þegar tveggja bíla árekstur varð á Þjóðvegi 1 við Vindbelgjarfjall í Mývatnssveit. Annar bílanna hafnaði utan vegar og valt á hlið, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.Tveir slökkviliðsbílar fóru á vettvang vegna þess að margir vettvangsliðar eru í slökkviliðinu, segir fulltrúi lögreglu. Lögregla stöðvaði umferð í skamma stund á meðan bílarnir voru dregnir af vettvangi. Þeir voru báðir óökuhæfir eftir slysið.RÚV / Bjarni Rúnarsson