Trump: „Klúðrum þessu ekki!“

Donald Trump Bandaríkjaforseti deilir á hernað Ísraels í Líbanon í færslu á samfélagsmiðli sínum í dag. Þar segir hann að árásin á úthverfi höfuðborgarinnar Beirút í morgun, þar sem þrír voru drepnir, hefði ekki átt að eiga sér stað, sérstaklega ekki þegar friðarsamkomulag við Íran er innan seilingar.Ísrael hefur gert fjölda árása á skotmörk í Líbanon síðustu daga og vikur þrátt fyrir að vopnahlé eigi að vera í gildi. Í morgun, þegar flest benti til þess að drög að friðarsamningi lægju fyrir, gerðu Ísraelsmenn enn og aftur árásir sem þeir segja að beinist að Hezbollah-hreyfingunni, vopnabræðrum Írana. Það hleypti illu blóði í klerkastjórnina, sem sagði að það yrði ekki samið við Bandaríkin á meðan sprengjum rigndi yfir Líbanon. ÍSRAEL HAFI BRUGÐIST OF HARKALEGA VIÐ Trump hefur nú brugði
Trump: „Klúðrum þessu ekki!“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd