Þróunarsjóður námsgagna segir mennta- og barnamálaráðuneytið byrja á vitlausum enda með því að greina aðeins stöðu námsgagna í einni grein. Þörf sé á að leggja meira fjármagn í námsgagnagerð. Stjórn sjóðsins óttast að með því að greina aðeins eitt fag muni hin sitja eftir og staðan verði óbreytt.