Ákvörðun lögreglu að loka skemmtistaðnum Exit aðfaranótt laugardags var óhófleg og ólögmæt að mati Anibal Hernandez, eiganda skemmtistaðarins.Aðgerðir lögreglu ollu fyrirtækinu, starfsfólki þess og samstarfsaðilum verulegu tjóni, auk þess sem þær stefndu orðspori staðarins í hættu, segir hann í yfirlýsingu.Anibal segir lögmann félagsins hafa verið fenginn í málið auk þess sem hann sjálfur hafi óskað eftir aðkomu Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) að málinu. „Enda tel ég að málið snerti ekki aðeins Exit heldur einnig grundvallarhagsmuni fyrirtækja í veitinga- og skemmtanageiranum,“ segir hann.Félagið muni fara fram á skaðabætur vegna þess „fjárhagslega og orðsporslega tjóns“ sem lokunin olli, reynist hún ekki lögmæt.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði Exit í samstarfi við Skatti