Mygla hefur valdið miklu raski á starfsemi ýmissa ríkisstofnana og Háskólans á Akureyri undanfarin ár.Vorið 2024 greindist mygla í húsnæði Reita – Borgum við Norðurslóð á Akureyri.Borgir hýstu fjölmargar stofnanir og starfsemi Háskólans á Akureyri. Meðal stofnana inni á Borgum voru Fiskistofa, Náttúruverndarstofnun, Umhverfis- og orkustofnun, Jafnréttisstofa og Náttúrufræðistofa.Þá höfðu stofnanir á vegum HA einnig aðsetur þar sem og skólinn sjálfur. Þó nokkrar stofnanir eru fluttar út og ætla ekki að snúa aftur. Aðrar hafa enn aðsetur þar en biðja starfsfólk sitt að vinna heima sökum ástandsins.Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur Háskólinn greitt leigu allar götur síðan myglan greindist, þrátt fyrir að húsnæðið sé metið óheilnæmt og starfsemin hafi flutt sig. Sömuleiðis hafa stofnanir