Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum nýlega að í fjárhagsáætlun 2027 verði almennar gjaldskrár hjá A-hluta ekki hækkaðar umfram 2,5% sem er verðbólguviðmið Seðlabanka Íslands. Bragi Bjarnason, sem situr í hreinum meirihluta Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn og er bæjarstjóri á nýju kjörtímabili eins og á því síðasta veit allt um málið.„Um leið skorum við á ríkisvaldið og önnur sveitarfélög að koma í þessa vegferð með okkur því saman getum við náð árangri, bæði fyrir sveitarfélagið okkar og Ísland í heild ef við náum nú verðbólgunni niður,” segir Bragi.Og það er eitthvað sem þið eruð að kalla á?„Já, við erum að kalla eftir því og sýna þá okkar ábyrgð í því og fylgja öðrum sveitarfélögum, sem höfðu áður tilkynnt þetta fyrr í vor”.Bragi segist hafa verulegar áhyggjur af þróun vaxta og v