Bárðarbunga eins og glas sem er orðið hálffullt

Fluglitakóði fyrir Bárðarbungu er á gulu eftir öfluga jarðskjálftahrinu í eldstöðinni sem hófst í gærkvöldi og stóð yfir fram á nótt. Um 400 jarðskjálftar hafa mælst frá því að hrinan hófst, sá stærsti var 4,8 að stærð. Enginn gosórói mældist þó þar í nótt. SENNILEGA ÖFLUGASTA HRINAN FRÁ SÍÐASTA GOSI Hrinan hófst um kvöldmatarleytið í gær. Skjálftavirknin var mest til klukkan þrjú í nótt en síðan hefur dregið úr henni. Alls hafa mælst yfir fjögur hundruð jarðskjálftar, þar af átta sem mældust stærri en þrír og tveir sem voru yfir fjórir að stærð. „Þetta var óvenju mikið. Þetta er nú sennilega öflugasta svona hrinan síðan öskjusiginu lauk fyrir ellefu árum,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði.Bárðarbunga er eitt stærsta eldstöðvakerfi landsins, er um 190 kílómetra
Bárðarbunga eins og glas sem er orðið hálffullt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd