Stærsti skjálftinn mældist 4,8 – enginn gosórói

Stærsti skjálftinn í jarðskjálftahrinunni sem hófst í Bárðarbungu í gærkvöldi mældist 4,8 að stærð. Frá þessu segir í tilkynningu frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands.Um 400 skjálftar hafa mælst síðan hrinan hófst. Skjalftavirknin var mest til klukkan 3 í nótt en síðan hefur dregið úr henni. Þó er enn of fljótt að segja til um hvort hrinan sé að fjara út.Síðast varð sambærileg jarðskjálftahrina í Bárðarbunguöskjunni í janúar á síðasta ári.Skömmu fyrir klukkan eitt í nótt hækkaði Veðurstofan fluglitakóða upp í gulan. Það þýðir að eldstöð sýni merki um virkni umfram venjulegt ástand.Vegna óvissu um framvindu atburðarins verður fluglitakóðinn áfram gulur.Enginn gosórói mældist þó á svæðinu í nótt. AUKIN SKJÁLFTAVIRKNI SÍÐUSTU TVÖ ÁR Bárðarbunga er ein öflugasta eldstöð landsins og minnir
Stærsti skjálftinn mældist 4,8 – enginn gosórói

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd