Um það bil 400 skjálftar mældust í kröftugri skjálftahrinu sem hófst um áttaleytið í Bárðarbungu í gær, sá stærsti 4,8 að stærð. Náttúruvársérfræðingur segir hrinurnar umfram hefbundna virkni í eldstöðinni. Því hafi verið tekin ákvörðun að færa fluglitakóðann á svæðinu upp á gulan.