Veðrið hefur leikið við íbúa á suðvesturhorninu um helgina og er fyrirséð að það haldi áfram í dag.Hiti gæti farið upp í 19 stig og hlýjast verður sunnan- og vestanlands. Vindátt verður hæg breytileg og bjart með köflum en líkur eru á skúrum síðdegis fyrir sunnan og vestan.Á morgun er áfram rólegheitaveður. Víða verður bjart og hlýtt norðaustanlands, en annars að mestu skýjað og væta með köflum vestan- og norðvestanlands.Veðurspáin er svohljóðandi:Hæg breytileg átt eða hafgola í dag og bjart með köflum, en líkur á síðdegisskúrum sunnan- og vestanlands. Hiti 7 til 19 stig, hlýjast suðvestanlands, en svalast í þokulofti við norður- og austurströndina.Austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s á morgun, hvassast syðst. Væta með köflum vestan- og norðvestanlands, bjart norðaustantil, en skýjað að mest