Stærsti skjálftinn í jarðskjálftahrinunni sem hófst í Bárðarbungu í gærkvöldi mældist 4,8 að stærð. Frá þessu segir í tilkynningu frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands.Um 400 skjálftar hafa mælst síðan hrinan hófst. Skjalftavirknin var mest til klukkan 3 í nótt en síðan hefur dregið úr henni. Þó er enn of fljótt að segja til um hvort hrinan sé að fjara út. Síðast varð sambærileg jarðskjálftahrina í Bárðarbunguöskjunni í janúar á síðasta ári. Skömmu fyrir klukkan eitt í nótt hækkaði Veðurstofan fluglitakóða upp í gulan. Það þýðir að eldstöð sýni merki um virkni umfram venjulegt ástand. Vegna óvissu um framvindu atburðarins verður fluglitakóðinn áfram gulur. Enginn gosórói mældist þó á svæðinu í nótt. AUKIN SKJÁLFTAVIRKNI SÍÐUSTU TVÖ ÁR Bárðarbunga er ein öflugasta eldstöð landsins og min