Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa á Ermarsundi snemma í morgun, að sögn Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands en aðgerðin stóð yfir í um sex klukkustundir. Hann segir þetta vera í fyrsta sinn sem breski herinn fer um borð í rússneskt olíuskip á Ermasundi.