Nýr forsætisráðherra í Rúmeníu

Nicusor Dan, forseti Rúmeníu, útnefndi Adrian Vestea nýjan forsætisráðherra landsins í morgun. Vestea, sem er 52 ára gamall og fyrrverandi þróunarmálaráðherra, fær með því tækifæri til að mynda nýja ríkisstjórn en mikil pólitísk óvissa hefur verið þar í landi síðan ríkisstjórn Ilije Bolojans var felld með vantrauststillögu á þinginu í síðasta mánuði.Í millitíðinni hafði Eugen Tomac reynt árangurslaust að mynda stjórn, en nú segist Vestea, sem er úr Frjálslynda flokki Bolojans, ætla að leggja áherslu á umbótastarf og vestræna samvinnu. Hann ætlar að reyna að mynda samsteypustjórn með þeim flokkum sem honum eru hlynntastir í þeim málum.Bolojan gagnrýndi þessa ákvörðun, enda er hann enn formaður Frjálslynda flokksins, og segir forsetann með þessu reyna að kljúfa flokkinn.
Nýr forsætisráðherra í Rúmeníu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd