Umfangsmiklar fjárfestingar Guðbjargar Matthíasdóttur, útgerðarkonu í Vestmannaeyjum, hafa byggst á nærri fimmtán milljarða króna arðgreiðslum út úr útgerð hennar, Ísfélaginu, á síðustu áratugum. Guðbjörg er einn umsvifamesti einkafjárfestir landsins og á, í gegnum fjárfestingafélög, allt frá heildsölum til hjúkrunarþjónustu eldri borgara. Guðbjörg tók við stjórn fjölskyldufyrirtækisins eftir fráfall Sigurðar Einarssonar, eiginmanns síns og forstjóra Ísfélagsins, og hefur veldið stækkað mikið...