Jarðskjálftahrinu sem hófst í gærkvöldi upp úr klukkan 22:00 í kjölfar skjálfta, sem mældist um 4,8 að stærð, fylgir enginn gosórói að svo stöddu. Ríflega tvö hundruð og fimmtíu skjálftar voru mældir frá klukkan 22:00 og til klukkan 02:00 en þar af voru ellefu skjálftar yfir þremur að stærð.