Nýútskrifaður stúdent úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Abdallah Rúnar Awal, var ansi hissa þegar hringt var í hann frá skólanum nokkrum dögum eftir útskrift. Þá var honum greint frá því að vegna prentmistaka hafi viðurkenning fyrir stærðfræði sem hann átti að fá við ekki verið afhent við athöfnina.