Hiti gæti farið í tuttugu gráður á Suðvesturlandi í dag og líkur á síðdegisskúrum en aðeins svalara verður í þokulofti við norður- og austurströndina. Hæg breytileg átt eða hafgola og almennt mjög rólegt veður í dag. Hiti fer lægst niður í um sex gráður á norðausturhorninu.