Breski herinn hefur stöðvað olíuflutningaskip í skuggaflota rússneska hersins á ferð um Ermarsund. Frá þessu greinir Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands. Aðgerðin stóð yfir í sex klukkustundir.Dan Jarvis, varnarmálaráðherra Bretlands, segir Rússa treysta á skuggaflotann til að fjármagna stríðið í Úkraínu. Stöðvunin sé högg í baráttunni gegn ólöglegu stríði Pútíns Rússlandsforseta.Skuggafloti Rússa er samansafn skipa sem rússnesk stjórnvöld halda úti með óljósu eignarhaldi í því skyni að komast hjá alþjóðlegum refsiaðgerðum með rússneska olíu. Skuggaflotinn flytur um 75% af þeirri olíu sem er flutt út frá Rússlandi.Refsiaðgerðir Breta, Evrópusambandsins og fleiri ríkja þýða að þessum skipum er óheimilt að leggjast að bryggju í Bretlandi. Þá er breskum fyrirtækjum og einstaklingum óheim