Mótmæla ferðatakmörkunum annarra ríkja

Stjórnvöld í Úganda gagnrýna ferðatakmarkanir sem Vesturlönd hafa innleitt vegna ebóluveirunnar, sem hefur borist yfir landamærin frá nágrannaríkinu Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó.Aðeins hafa nítján tilfelli ebólu greinst í Úganda frá því neyðarástandi var lýst yfir í nágrannaríkinu Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Þar af eru tveir látnir.Viðbrögð stjórnvalda hafa þótt góð. Thedros Ghebreyesus, forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, hefur til að mynda hrósað þeim. Af tilfellunum nítján hafa langflest verið vegna kongóskra ríkisborgara sem hafa ferðast yfir landamærin.Fjölmörg ríki hafa aftur á móti lagt á ferðabann frá Úganda, Kongó og nágrannaríkinu Suður-Súdan. Þetta á til að mynda við um Bandaríkin, Kanada og Sameinuðu arabísku furstadæmin.Diana Atwine, heilbrigðisráðherra Úganda, segir í
Mótmæla ferðatakmörkunum annarra ríkja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd