Kona á fertugsaldri er í lífshættu eftir hákarlaárás á Cooge-ströndinni í Sydney í Ástralíu, einni af fjölsóttustu ströndum landsins.Aðrir gestir strandarinnar komu henni til bjargar. Lögregla segir að hún sé nú á spítala, enn í lífshættu. Stórum hluta strandarinnar og annarra nærliggjandi stranda var í kjölfarið lokað meðan lögregla og viðbragðsaðilar leituðu að hákarlinum, bæði úr þyrlu og af sjónum.Hákarlaárásir hafa alla tíð stefnt mönnum í hættu í Ástralíu.Frá árinu 1791 hafa 1.300 hákarlaárásir verið skráðar í annála og 260 manns látist, eða nærri einn á ári síðustu rúmu tvær aldir.Árið í ár er sérlega slæmt. Þótt ekki sé kominn nema júní hafa þegar fjórir farist af völdum hákarlaárása. Í síðustu viku dó dýfingarmaður eftir að hann var bitinn af hákarli við strendur Perth. Í síðasta