Veðurstofan hefur hækkað fluglitakóða fyrir Bárðarbungu upp í gulan. Þetta var gert skömmu fyrir klukkan eitt í nótt eftir mikla skjálftahrinu í norðanverðri öskju Bárðarbungu. Stærsti sjálfrinn var klukkan 20:14 í kvöld, eða 4,8 að stærð. Síðan þá hafa um 250 eftirskjálftar mælst, þar af ellefu yfir þremur að stærð. Enginn gosórói mælist þó. Síðast gaus úr eldstöðvakerfi Bárðarbungu sumarið 2014. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að hrinan nú sé ein sú kröftugasta frá eldsumbrotunum 2014–2015.RÚV / Björn Oddsson