Íran og Bandaríkin hafa aldrei verið jafn nálægt samkomulagi um endalok stríðsins, að sögn fulltrúa Pakistans sem hafa milligöngu um friðarviðræður ríkjanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti að samkomulag yrði undirritað á morgun en stjórnvöld í Íran gáfu til kynna að samningsaðilar þyrftu aðeins meiri tíma.