Óboðlegur samningur um hjólhýsabyggð

Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir að samningur Reykjavíkurborgar um hjólhýsabyggð í Gufunesi hafi verið „fullkomlega óboðlegur“ og ein af mörgum ákvörðunum sem síðasti meirihluti í borgarstjórn tók án skoðunar.Þetta segir Einar í viðtali við Vísi.Eitt fyrsta verk nýs meirihluta í borgarstjórn var að segja upp nýundirrituðum samningi Reykjavíkurborgar við Samtök hjólabúa, þar sem hópnum var veittur aðgangur að landsvæði í Gufunesi fyrir hjólhýsabyggð. Þangað átti að flytja hjólhýsabyggð sem hefur verið á Sævarhöfða.Í viðtali við Vísi segir Einar að hann telji hjólhýsagarða ekki gott búsetuúrræði. Þá liggi fyrir að stór hluti þeirra sem setjast þar að geri það ekki vegna fátæktar, heldur velji sér þetta búsetuform og þurfi þá ekki að borga sömu skatta og skyldur o
Óboðlegur samningur um hjólhýsabyggð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd