Breski útigangsmaðurinn Karl Smith frá Manchester, Charlie, sem heldur til á götum Arguineguín á Gran Canaria, er líka Spánverjinn Karl Francis Cabrera og ber vegabréf þeirra beggja. Hann langar heim að heimsækja móður sína, sem var að greinast með krabbamein, og gera upp gamla misklíð. En bresk yfirvöld neita.