Landsréttur hefur sýknað ungan mann sem sakfelldur var fyrir að nauðga þáverandi kærustu sinni af Héraðsdómi Reykjavíkur í október í fyrra.Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa, þegar hann var tvítugur og hún nítján ára, haft samræði við þáverandi kærustu sína á meðan hún var sofandi og þar af leiðandi nauðgað henni þar sem hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum svefndrunga.Í dómi Landsréttar segir að maðurinn hafi staðfastlega neitað sök. Hann hafi skýrt svo frá að hann hafi átt samræði við stúlkuna umrætt kvöld en að hún hafi verið vakandi og veitt samþykki.Landsréttur taldi framburð mannsins hafa verið stöðugan og að hnökrar á honum væru ekki þess eðlis að draga úr trúverðugleika hans.Í dómi héraðsdóms kom fram að ungu konuna hafi farið að gruna, daginn eftir að hún gisti hjá manninum,