Spila golf fyrir góðan málstað á Palla Open

Palla Open golfmótið var haldið í sjötta sinn í dag og hefur mótinu vaxið fiskur um hrygg síðan það var haldið fyrst. Páll Örn Líndal segir hugmyndina að mótinu fyrst hafa kviknað á tímum covid.„Þegar við vorum að deyja úr leiðindum ákváðum við félagarnir að spila golfhring sem endaði með golfmóti sem á spiluðu 198 keppendur,“ segir hann.Mótið er haldið í samstarfi við Golfklúbb Mosfellsbæjar og er með þeim stærstu sem klúbburinn heldur. Allur ágóði af mótinu rennur til Sumarbúða Gló í Reykjadal og fer í nýjan matsal og leiksvæði.„Það bókaðist upp núna á tíu mínútum þetta árið og á næsta ári ætlum við að nota bæði Hlíðarvöll og Bakkakot fyrir mótið svo það verða bara 500 manns hérna á næsta ári,“ segir Páll Örn.
Spila golf fyrir góðan málstað á Palla Open

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd