Jarðskjálfti að stærðinni 4,8 mældist í Bárðarbungu klukkan 20:14 í kvöld. Annar skjálfti að stærðinni 2,6 var skömmu áður, eða klukkan 20:10. Báðir skjálftarnir eru staðsettir í norðanverðri öskju Bárðarbungu á um 2-4 km dýpi. Um 20 eftirskjálftar hafa mælst. Skjálftar af þessari stærð mælast nokkuð reglulega í Bárðarbungu og var síðasti skjálfti um og yfir 5 að stærð 31. janúar síðastliðinn og mældist 5,4 að stærð.Myndin sýnir hvar upptök skjálftans átti sér stað.Veðurstofa Íslands