Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði segja það vekja furðu að lögreglan ráðist í aðgerðir á skemmti- og veitingastöðum á háannatíma sem leiddu til þess að þremur stöðum var lokað síðustu nótt. Samtökin geri ekki athugasemdir við sakargiftirnar en aðgerðin beindist gegn öryggisþjónustufyrirtæki sem starfar á stöðunum, að sögn lögreglu.