Forseta Íslands hefur aldrei verið boðið í eins gamalt afmæli eins og í dag en það var 1150 ára afmæli Hrunamannahrepps.Hátíðardagskrá var á Flúðum í tilefni dagsins þar sem forsetinn eignaðist meðal annars sundtösku með íslenska fánanum og risa grænmetiskörfu.Forseti Íslands sótti Hrunamannahrepp heim á afmæli sveitarfélagsins.Frú Halla Tómasdóttir og Björn maður hennar voru mætt á Flúðir um hálf tólf í morgun við Gömlu laugina þar sem þau fengu kynningu á lauginni og starfsemi hennar en laugin er mjög vinsæl, ekki síst á meðal erlendra ferðamanna. Þau heimsóttu líka Flúðasveppi og borðuðu þar hádegismat. Síðan var Viss verndaður vinnustaður á Flúðum, heimsóttur.En 1150 ára afmæli, er það ekki bara eitthvað grín?„Nei, þetta er bara samkvæmt landnámu, það er búið að reikna þetta út nokkurn