„Fyrir hverja starfa stjórnvöld?“

„Fyrir hverja er verið að fara þessa blönduðu leið? Fyrir hverja starfa stjórnvöld?“ spyr Alma Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn. Samtökunum var nýlega boðið til fundar með spretthópi dómsmálaráðherra um stefnumótun í málefnum fjárhættuspila. Þau mótmæla svokallaðri „blandaðri leið“ í opnu bréfi til dómsmálaráðherra.„Miðað við þær hugmyndir sem þau virðast vera að einblína á, þessa blönduðu leið, þá veltum við fyrir okkur fyrir hverja er verið að vinna þessa vinnu. Af því að í samfélaginu er ekki verið að óska eftir meira aðgengi að fjárhættuspilum. Þvert á móti,“ segir Alma í samtali við fréttastofu RÚV. 86 PRÓSENT VILJA LOKA SPILAKÖSSUM Til að mynda hafi nemendur og stúdentaráð Háskóla Íslands kallað eftir því að spilakössum á vegum háskólans verði lokað. Þá vi
„Fyrir hverja starfa stjórnvöld?“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd