Enn og aftur hillir undir friðarsamninga milli Bandaríkjanna og Írans. Lítið hefur þó ræst úr svipuðum yfirlýsingum síðustu daga og vikur.Afar misvísandi fregnir hafa borist frá Washington og Tehran að undanförnu, hvort samningar séu í sjónmáli og hvað felist þá í þeim. Einhver kaflaskil urðu í gær eftir að forsætisráðherra Pakistans, Shehbaz Sharif, sem hefur haft milligöngu í samskiptum ríkjanna, sagði lokasamningsdrög liggja fyrir.Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði svo fyrir stuttu á samfélagsmiðli sínum Truth Social, að stefnt væri að því að undirrita friðarsamning á morgun, og þá opnaði Hormússund fyrir allri skipaumferð.Þessi bjartsýni Trumps stangast þó á við yfirlýsingar Írana frá því fyrr í dag, en þarlendir fjölmiðlar höfðu eftir utanríkisráðuneytinu að samningurinn yrði ekki u