Fleiri eru hlynntir en andvígir því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið samkvæmt nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir DV. Alls sögðust 44,5 prósent svarenda vera hlynntir viðræðum en 39,4 prósent andvígir. Á sama tíma svöruðu 14,6 prósent veit ekki og 1,5 prósent vildu ekki svara.