Orban endurkjörinn formaður Fidesz

Viktor Orban, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands, var endurkjörinn formaður flokks síns, Fidesz, í dag, um tveimur mánuðum eftir stórtap í þingkosningum sem bundu enda á 16 ára valdatíð hans.Orban, sem er 62 ára, hefur um árabil verið einn af merkisberum evrópskra harðlínuflokka af hægri vængnum. Samkvæmt frétt Reuters hafði myndast þrýstingur innan raða Fidesz um að hann ætti að þekkja sinn vitjunartíma, það varð þó lítið úr slíkum hugmyndum á flokksþingi í dag, þar sem 729 af 737 fundarmönnum greiddu Orban atkvæði sitt. Eftir að úrslitin lágu fyrir var Orban býsna vígreifur og sagði að flokkurinn þyrfti að ná vopnum sínum til að verða tilbúinn til að taka stjórn á ný.Í kosningunum í apríl vann Tisza-flokkur Peters Magyars afgerandi sigur og hefur síðan verið að vinda ofan af stef
Orban endurkjörinn formaður Fidesz

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd